Daglegar ferðir upp á Akranes · 0 g CO₂
Við keyrum á milli Reykjavíkur og Akraness alla virka daga á rafmagnssendibíl sem gengur fyrir íslensku rafmagni. Sendingin þín kemst á áfangastað án útblásturs.
Bíllinn
Rafmagnssendibíll með rennihurð beggja vegna og opnun að aftan. Rafhlaðan er undir gólfinu, svo farmrýmið er jafn stórt og í dísilbílnum.
Tekur þrjú evrópubretti (120 × 80 cm). Drægni um 250 km á hleðslu — Akranes–Reykjavík fram og til baka og gott betur.
Kemst þetta?
Veldu það sem þú ætlar að flytja. Kassinn sýnir hversu mikið af 2,68 m gólfinu fer undir það.
Veldu hluti hér að ofan.
Þetta er gróf viðmiðun miðað við gólfplássið — hægt er að stafla og raða þéttar. Ertu í vafa? Hringdu og lýstu farminum.
Þjónusta
Sófi milli húsa, lítil búslóð eða stök húsgögn. Við sækjum og skilum á réttan stað.
Þrjú evrópubretti komast í bílinn. Hentar vel í reglulegar sendingar fyrir fyrirtæki.
Vantar hendur í burðinn? Það er hægt að fá mann með bílnum — láttu vita þegar þú pantar.
Svæði
Bíllinn fer undir Hvalfjörð alla virka daga hvort sem er. Ef sendingin þín kemst með í ferð sem er þegar á áætlun borgar þú ekki fyrir auka ferð.
Ferð upp alla virka daga. Sendingar, húsgögn og búslóðir upp á Skaga.
Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær og Mosfellsbær.
Kjalarnes, Hvalfjarðarsveit og Borgarnes eru á leiðinni. Spurðu um lengri ferðir.
Vinnutími
Opið 8–17 alla virka daga. Þarftu flutning utan þess tíma? Hringdu og við sjáum hvað er hægt.
Bókun
Pöntunin fer beint inn í kerfið og þú færð staðfestingu strax. Ert þú fyrirtæki með aðgangskóða? Sláðu hann inn og upplýsingarnar fyllast sjálfkrafa.
eða hringdu í 788 8865